Skilmálar
Almennt
Nús/Nús áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga og einnig að breyta verði eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis.
Ókeypis heimsending
Ef keypt er fyrir meira en 15.000 kr. er hægt að fá pöntunina senda ókeypis heim innan höfuðborgarsvæðisins.
Afhending vöru
Allar vörur eru afgreiddar næsta virka dag eftir pöntun. Sé varan ekki til á lager munum við hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar. Ef ekki er valið að sækja pöntun og ef pöntun er fyrir utan höfuðborgarsvæðið, þá er varan send með Íslandspósti og gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu hennar. Nús/Nús ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Verði vara fyrir tjóni frá því að að hún er send frá Nús/Nús til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda.
Skilafrestur og endurgreiðsluréttur
Kaupandi hefur 14 daga til að hætta við kaupin að því tilskildu að hann hafi ekki notað vöruna, henni sé skilað í góðu lagi í óuppteknum upprunalegum umbúðum. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Fresturinn byrjar að líða þegar varan er afhent skráðum viðtakanda. Kvittun fyrir vörukaupunum þarf að fylgja með. Endurgreiðsla er framkvæmd að fullu ef ofangreind skilyrði eru uppfyllt og eftir að varan er móttekin. Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd. Vinsamlegast hafið samband við Nús/Nús með spurningar.
Verð
Vinsamlegast athugið að verð á netinu getur breyst án fyrirvara.
Skattar og gjöld
Allt verð í netversluninni er með VSK og reikningar eru gefnir út með VSK.
Trúnaður
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.
Skilmálar þessir eru í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna þeirra skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.
Nús/Nús
Funahöfða 17a
110 Reykjavík
Sími: 660 7667
Kt: 540292-2489
VSK númer: 32576